Stjórn Orkuveitunnar er kjörin af sveitarstjórnum sveitarfélaganna þriggja sem eiga fyrirtækið.
Fulltrúar Reykjavíkurborgar í stjórn Orkuveitunnar eru Gylfi Magnússon, sem er formaður, Vala Valtýsdóttir, sem er varaformaður, Skúli Helgason, Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir og Þórður Gunnarsson.
Varamenn eru Auður Hermannsdóttir, Sara Björg Sigurðardóttir, Páll Gestsson, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir og Björn Gíslason.
Fulltrúi Akraneskaupstaðar er Valgarður Lyngdal Jónsson.
Áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar er Guðveig Lind Eyglóardóttir.
Áheyrnarfulltrúi Starfsmannafélags Orkuveitunnar er Unnur Líndal Karlsdóttir.
Fundargerðir stjórnar
Starfsreglur stjórnar Orkuveitunnar
Sameignarsamningur
Eigendastefna
Endurskoðunarnefnd
Endurskoðunarnefnd Reykjavíkurborgar starfar fyrir Reykjavíkurborg og dótturfyrirtæki hennar. Nefndina skipa Lárus Finnbogason, löggiltur endurskoðandi, Sigrún Guðmundsdóttir, löggiltur endurskoðandi, Einar S. Hálfdánarson, lögmaður og löggiltur endurskoðandi og Sunna Jóhannsdóttir viðskiptafræðingur sem tilnefnd er af stjórn Orkuveitunnar.
Starfskjaranefnd
Starfskjaranefnd skipa stjórnarmennirnir Vala Valtýsdóttir og Þórður Gunnarsson auk Drífu Sigurðardóttur.