ON Power semur við Norðurál um raforkusölu

16. apr 2025

Orkuveitan

Fulltrúar Orkuveitunnar, ON Power – dótturfyrirtækis alfarið í eigu Orkuveitunnar – og Norðuráls skrifuðu í dag undir sölusamning á 150 megavatta raforku til álversins á Grundartanga. Samningurinn er til allt að fimm ára og leysir af hólmi eldri raforkusölusamninga milli Orkuveitu Reykjavíkur og Norðuráls sem renna út á næstu árum. Samkomulagið felur einnig í sér að Orkuveitan og Norðurál leggja af málarekstur fyrir gerðardómi vegna mismunandi túlkunar aðila á ákvæðum fyrri samnings. 

Samningurinn, sem gengur í gildi á fjórða ársfjórðungi 2026, mun hafa talsvert jákvæð áhrif á afkomu raforkusölu, umfram það sem kemur fram í fjárhagsspá Orkuveitunnar fyrir árin 2025-2029, sem birt var með tilkynningu í Kauphöll í október 2024. Næsta fjárhagsspá verður birt á haustmánuðum. 

Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, segir það nú hafa gengið eftir sem hann sagði við birtingu fjárhagsspárinnar, að stefnt væri að því að betra verð fengist fyrir raforku til stórnotenda. „Um leið og samstarf við mikilvægan viðskiptavin og starfsemi sem skapar verðmæti fyrir samfélagið er framlengt opnast ný tækifæri fyrir Orkuveituna að vera aflvaki sjálfbærrar framtíðar,“ segir Sævar Freyr. 

Aðilar raforkusölusamningsins senda frá sér svohljóðandi tilkynningu í dag: 

ON Power og Norðurál undirrita fimm ára raforkusölusamning   

ON Power og Norðurál hafa skrifað undir nýjan raforkusölusamning um afhendingu á 150 megavöttum af raforku frá ON til allt að 5 ára. Samningurinn tekur við af eldri samningi milli aðila. Nýr samningur mun renna út í skrefum til og með 31. mars 2032. Samningurinn markar áframhaldandi samstarf tveggja mikilvægra aðila í íslensku atvinnulífi og er liður í því að tryggja raforku fyrir eina umhverfisvænustu álframleiðslu sem völ er á.   

Viðræður ON og Norðuráls hafa staðið yfir um nokkurt skeið, en þær einkenndust af trausti, góðum samskiptum og sameiginlegri sýn á mikilvægi sjálfbærrar nýtingar og sanngjarns raforkuverðs.    

Bæði ON og Norðurál eru ánægð með niðurstöðu viðræðna og telja samninginn mikilvægt skref í því að efla samstarf sitt til framtíðar.    

„Við erum mjög ánægð með að ná þessum samningi við Norðurál, sem hefur verið mikilvægur viðskiptavinur ON um árabil,“ segir Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar og ON Power. „Samningurinn endurspeglar markaðsverð og tryggir að verðmæti þeirrar raforku sem við vinnum nýtist samfélaginu með sjálfbærum hætti.“   

„Samningurinn tryggir fyrirsjáanleika sem er mikilvægur í okkar rekstri“ segir Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls. „Við hlökkum til að vinna með ON og halda áfram að skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið.“   

ON Power en annað tveggja virkjana- og raforkusölufyrirtækja í eigu Orkuveitunnar. ON Power á og rekur Hellisheiðarvirkjun og selur orku til stórnotenda.  Orka náttúrunnar á og rekur Nesjavallavirkjun og Andakílsárvirkjun og selur raforku á almennum markaði. „Samningurinn tryggir fyrirsjáanleika sem er mikilvægur í okkar rekstri“ segir Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls. „Við hlökkum til að vinna með ON og halda áfram að skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið.“ 

Nánari upplýsingar: 

Sævar Freyr Þráinsson 
Forstjóri Orkuveitunnar 
saevar.freyr.thrainsson@orkuveitan.is