23. maí 2025
OrkuveitanOrkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) lauk í dag, 23. maí 2025, stækkun á græna skuldabréfaflokknum OR180242 GB. Gefin voru út skuldabréf að nafnvirði 5.300 m.kr. og seld á ávöxtunarkröfunni 7,78%. Stærð flokksins eftir stækkun verður 11.538 milljónir að nafnvirði.
Stefnt er að uppgjöri viðskiptanna mánudaginn 2. júní nk. og verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í kjölfarið.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Nánari upplýsingar:
Snorri Hafsteinn Þorkelsson, framkvæmdastjóri Fjármála Orkuveitunnar, sími: 516 6100, netfang: snorri.hafsteinn.thorkelsson@orkuveitan.is
Matei Manolescu, markaðsviðskiptum Fossa fjárfestingarbanka, sími: 522 4008, netfang: matei.manolescu@fossar.is