Breytt greiðslufyrirkomulag dótturfélaga – öryggið í fyrirrúmi

30. apr 2025

Orkuveitan

Hluti viðskiptavina Orku náttúrunnar og Veitna þarf að skrá kreditkortaupplýsingar að nýju á Mínum síðum.

Orka náttúrunnar og Veitur, dótturfélög Orkuveitunnar, hafa tekið í notkun nýjan færsluhirði fyrir kreditkort. Í kjölfarið þarf hluti viðskiptavina að skrá greiðslukortaupplýsingar að nýju á Mínum síðum. Þar til það hefur verið gert, mun reikningur birtast í heimabanka í stað sjálfvirkrar kortafærslu.

Breytingin á eingöngu við greiðslur fyrir heimilisrafmagn og vatnsveituþjónustu og hefur ekki áhrif á hleðslustöðvar fyrir rafbíla.

Öryggi og áreiðanleiki í fyrirrúmi

„Við leggjum áherslu á að mikilvæg þjónusta eins og greiðslumiðlun byggi á traustum og öruggum innviðum. Það er í takt við ábendingar Seðlabankastjóra sem hefur hvatt íslensk fyrirtæki til að nýta innlendar lausnir í öryggisskyni. Með þessari breytingu tryggjum við betri stjórn á viðkvæmum gögnum og aukið traust í samskiptum við viðskiptavini,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.

Viðskiptavinir eru hvattir til að fara inn á vef Orku náttúrunnar eða Veitna og fylgja þar skýrum leiðbeiningum um hvernig bera skuli sig að.