9. september 2026

Auðlindahringur 2026 – Rafveituhringur

Loading...
🚵🏼‍♀️ Rafveituhringur frá Elliðaárstöð verður hjólaður í tilefni af evrópskri samgönguviku. Í rafveituhringnum kynnast þátttakendur auðlindum borgarinnar og auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um rafveitu höfuðborgarsvæðisins. Vissir þú að í dreifikerfi Veitna eru yfir 3.000 km af rafstrengjum og vel yfir 1.000 spennar sem spanna spennustig frá 230V upp í 132kV, allt tengt saman... Read more »

🚵🏼‍♀️ Rafveituhringur frá Elliðaárstöð verður hjólaður í tilefni af evrópskri samgönguviku. Í rafveituhringnum kynnast þátttakendur auðlindum borgarinnar og auðlindasérfræðingar Orkuveitunnar leiða þátttakendur í hjólaleiðsögn um rafveitu höfuðborgarsvæðisins. Vissir þú að í dreifikerfi Veitna eru yfir 3.000 km af rafstrengjum og vel yfir 1.000 spennar sem spanna spennustig frá 230V upp í 132kV, allt tengt saman í flókið net til að koma raforku til viðskiptavina? ⚡️17. september bjóðum við upp á Rafveituhringinn sem er ca. 25 km hjólahringur, mestmegnis á malbiki og möl. Skoðað verða lykil mannvirki í flutning og dreifingu rafmagns og fræðst um það hvernig raforka kemst frá virkjun til viðskiptavina. ⚡️Þátttakendur eru beðnir um að mæta á fjallahjólum/ malarhjólum eða raffjallahjólum kl. 17:00 við Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 6. Munið að klæðast eftir veðri. ⚡️Sérfræðingar hjá Veitum leiða hjólaferðina og miðla áhugaverðum fróðleik og sögum. ⚡️Þátttaka er ókeypis og boðið verður upp á léttar veitingar á leiðinni. ⚡️Hægt er að sjá leiðina hér: https://strava.app.link/2QyX0DgklWb ⚡️Rafveituhringurinn er hjólaður í samstarfi við Lauf Cycles. Hlökkum til að sjá ykkur.