Djúpnýtingarverkefnið gæti styrkt stöðu Íslands sem leiðandi jarðhitaþjóð
Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun Morgunblaðsins í dag þar sem rætt var við Sævar Frey Þráinsson forstjóra Orkuveitunnar og Heru Grímsdóttur, framkvæmdastýru rannsókna og nýsköpunar.
Djúpnýtingarverkefni Orkuveitunnar, sem er móðurfélag ON, hefur vakið athygli fyrir metnaðarfull markmið um að sækja orku dýpra niður í jarðhitakerfi landsins en áður hefur verið gert. Takist vel til gæti það opnað nýja möguleika í orkuvinnslu hér á landi og markað tímamót í nýtingu jarðhita.
„Við ætlum okkur að vera fyrst í heiminum til að sýna fram á raforkuvinnslu úr slíkri holu,“ segir Sævar Freyr í viðtalinu.
Fyrir ON felast í verkefninu mikilvæg framtíðartækifæri. Aukin nýting á dýpri og heitari hlutum jarðhitakerfa gæti styrkt möguleika fyrirtækisins til að framleiða endurnýjanlega orku með enn skilvirkari hætti, bætt orkunýtni og stutt við áframhaldandi orkuöryggi og verðmætasköpun úr íslenskum auðlindum. „Þetta snýst um að nýta auðlindir betur, ekki bara að fá meira,“ sagði Sævar Freyr jafnframt.
Hluta af viðtalinu við þau Sævar Frey og Heru má lesa hér og svo nánar í Morgunblaðinu á bls. 18-20.