10. september 2026

Djúpnýtingarverkefni Orkuveitunnar vekur athygli

Loading...

Morgunblaðið fjallar ítarlega í dag um djúpnýtingarverkefni Orkuveitunnar og ræðir við Sævar Frey Þráinsson forstjóra og Heru Grímsdóttur, framkvæmdastýru rannsókna og nýsköpunar.

Líkt og fram kemur í blaðinu undirbýr Orkuveitan nú næsta stóra skref í nýtingu jarðhita á Íslandi. Á Nesjavöllum ætlum við að bora niður í ofurheitt jarðhitakerfi, þar sem hitinn fer yfir 400°C. Markmiðið er að þróa tækni sem gæti gert okkur kleift að fá margfalt meiri orku úr hverri borholu, nýta núverandi jarðhitasvæði betur og til lengri tíma opnað möguleika á jarðhitanýtingu á mun fleiri stöðum.

„Við ætlum okkur að vera fyrst í heiminum til að sýna fram á raforkuvinnslu úr slíkri holu,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar m.a.í viðtalinu.

Verkefnið gæti markað þáttaskil í nýtingu jarðhita með möguleika á að vinna margfalt meiri orku úr hverri borholu og nýta jarðhitann betur en við gerum í dag.

Viðtalið er á forsíðu Morgunblaðsins og bls. 18–20.

Hægt er að lesa viðtalið hér.