6. október 2026

Endurbætur á Vesturhúsi og hvolfrými hljóta Svansvottun

Loading...

Orkuveitan hefur fengið Svansvottun fyrir endurbætur á Vesturhúsi og Hvolfrými. Vottunin staðfestir að verkefnin hafi uppfyllt strangar kröfur Svansins um umhverfisvænar og sjálfbærar framkvæmdir. Verkefnið, sem nær yfir 5000m2 svæði, er stærsta endurbótaverkefni sem hefur hlotið Svansvottun á Íslandi í einu lagi.

Við endurbæturnar var horft til umhverfisáhrifa á öllum stigum verkefnisins, meðal annars við val á byggingarefnum, meðhöndlun úrgangs, orkunotkun og aðbúnað þeirra sem nýta húsnæðið. Svansvottunin felur jafnframt í sér kröfur um heilnæmt innivistarumhverfi og ábyrg vinnubrögð í framkvæmdum.

„Við erum stolt af því að fá Svansvottun fyrir endurbæturnar á Vesturhúsi og Hvolfrými. Vottunin staðfestir að við höfum tekið meðvitaðar og ábyrgar ákvarðanir í framkvæmdaferlinu og séum með sjálfbærni að leiðarljósi í öllum okkar verkefnum – einnig þegar um endurbætur á eldra húsnæði er að ræða,“ segir Kristrún Dröfn Jóhannsdóttir, Forstöðukona Innri þjónustu.

Þetta er annað leyfið sem Orkuveitan fær afhent en á síðasta ári síðan hlaut Orkuveitan Svansvottun á mötuneyti sínu. Svansvottanirnar eru mikilvæg viðurkenning á því markmiði Orkuveitunnar að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar og stuðla að ábyrgri nýtingu auðlinda.