Fjölbreytt tækifæri kynnt fyrir háskólanemum

Orku- og vísindadagur Orkuveitunnar fór fram í síðustu viku. Þar fengu um 700 háskólanemar tækifæri til að kynnast fjölbreyttri starfsemi Orkuveitunnar og dótturfélaganna, Veitna, ON, Carbfix og Ljósleiðarans, ásamt þeim fjölmörgu verkefnum og starfstækifærum sem þar er að finna.
Starfsfólk miðlaði reynslu sinni og veitti innsýn í verkefni sem tengjast meðal annars orku, veitum, ljósleiðaratækni, umhverfismálum, nýsköpun og stafrænni þróun. Nemendur gátu rætt við sérfræðinga, spurt spurninga og kynnt sér hvernig háskólanám þeirra getur nýst til að leysa fjölbreyttar samfélagslegar áskoranir og vinna að ábyrgri nýtingu auðlinda okkar.
Dagurinn var virkilega skemmtilegur og mikilvægur vettvangur fyrir samtal milli okkar og háskólasamfélagsins. Starfsfólk okkar átti mörg góð samtöl við nemendurna og fékk innsýn í þeirra áhugasvið um framtíðarstörf og vinnustaði.
Takk fyrir komuna!


