Fjölbreytt vísindastarf Orkuveitunnar á Vísindavöku
Fyrirtæki Orkuveitunnar, Veitur, Ljósleiðarinn, Orka náttúrunnar og Carbfix tóku þátt í Vísindavöku þar sem gestum gafst kostur á að kynnast fjölbreyttu vísinda-, tækni- og nýsköpunarstarfi fyrirtækjanna með lifandi og skemmtilegum hætti.
Orkveitan bauð gestum að taka þátt í skemmtilegum ilmleik þar sem þátttakendur reyndu að tengja giska á ilminn. Leikurinn vakti bæði forvitni og skemmtilegar umræður um ólíkar hliðar vísindanna. Einn heppinn gestur var dreginn út að degi loknum og hlaut að launum gjafapoka fullan af fræðslu og góðgæti.
Hjá Veitum gátu börn og fullorðnir spreytt sig í leiknum Vertu orkuhetja, þar sem þátttakendur fengu innsýn í mikilvægi innviða og hlutverk þeirra í daglegu lífi.
Ljósleiðarinn sýndi frá ýmsum tækjum og tólum sem notuð eru við uppbyggingu og rekstur ljósleiðaranetsins. Gestir fengu þannig að kynnast tækninni sem liggur að baki hraðvirkum og öruggum fjarskiptum. Ljósleiðarinn bauð gestum einnig að taka þátt í leik og kynnast þannig tækninni enn betur. Það var hann Þórir Svan sem átti flest rétt svör og hlaut fyrir vikið Ljósleiðara-poka með gjafabréfum og bleikum varningi.
Jarðhitasýning Orku náttúrunnar bauð upp á heimsókn inn í heim vísindanna í gegnum smásjá. Þar gátu gestir skoðað sýni í smásjánni og fræðst um þau náttúrulegu ferli sem tengjast jarðhitanum sem við nýtum á hverjum degi.
Carbfix bauð gestum meðal annars að taka þátt í cornhole-leik þar sem fræðsla og skemmtun fóru saman. Um leið fengu áhugasamir að fræðast um kolefnisföngun og steinbindingu kolefnis, sem er ein af þeim lausnum sem þróaðar eru til að takast á við loftslagsáskoranir framtíðarinnar.
Vísindavaka er mikilvægur vettvangur til að vekja áhuga á vísindum og tækni og skapa samtal milli vísindafólks og almennings. Við þökkum öllum sem komu við hjá okkur, spjölluðu við starfsfólkið og tóku þátt í verkefnum dagsins. Það var virkilega ánægjulegt að sjá hversu mikinn áhuga gestir sýndu því fjölbreytta starfi sem fram fer hjá fyrirtækjum Orkuveitunnar á hverjum degi.