Franski utanríkisráðherrann heimsótti Hellisheiðarvirkjun
© geinar
Franski utanríkisráðherrann, Jean-Noël Barrot, heimsótti í gær Hellisheiðarvirkjun í boði Orkuveitunnar þar sem hann kynnti sér íslenskar lausnir á sviði endurnýjanlegrar orku og varanlegrar kolefnisbindingar.
Heimsóknin var hluti af opinberri heimsókn ráðherrans til Íslands þar sem hann átti fundi með íslenskum stjórnvöldum um samstarf ríkjanna og málefni Evrópu.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, tók á móti gestunum í Hellisheiðarvirkjun og kynnti hlutverk fyrirtækisins í uppbyggingu mikilvægra innviða, orkuskiptum og loftslagslausnum.
Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, fjallaði um nýtingu jarðhita á Íslandi og hvernig endurnýjanleg orka hefur skapað grunn að samkeppnishæfni og sjálfbærri þróun. Að því loknu kynnti Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, tækni fyrirtækisins til föngunar og varanlegrar steinbindingar koltvísýrings.
Heimsókninni lauk með vettvangsferð að niðurdælingarsvæði Carbfix við Hellisheiðarvirkjun.
„Það er mikill heiður að taka á móti franska utanríkisráðherranum og sendinefnd hans. Slíkar heimsóknir endurspegla þann alþjóðlega áhuga sem er á íslenskri þekkingu á jarðhita, uppbyggingu sjálfbærra innviða og loftslagslausnum. Við leggjum áherslu á að deila þeirri reynslu sem byggst hefur upp á Íslandi og vinna með samstarfsaðilum að lausnum sem nýtast víðar í heiminum,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar.