Fulltrúar Evrópska fjárfestingarbankans heimsóttu Orkuveituna
Orkuveitan tók á móti fulltrúum Evrópska fjárfestingarbankans (EIB) í höfuðstöðvum fyrirtækisins og síðar í Hellisheiðarvirkjun þann 1. júlí sl.
Í heimsókninni kynntu stjórnendur Orkuveitunnar starfsemi sína, framtíðarsýn, uppbyggingu innviða og umfang fjárfestinga á komandi árum. Einnig var farið yfir verkefni dótturfélaganna Orku náttúrunnar, Veitna og Carbfix, meðal annars á vettvangi Hellisheiðarvirkjunar.
Gestir frá EIB voru Gilles Badot, framkvæmdastjóri opinberra fjárfestingaverkefna hjá bankanum, Timo Kiiha, sviðsstjóri opinberra verkefna á Norðurlöndum, í Þýskalandi og Austurríki, og Guillaume Piat, aðalráðgjafi vegna verkefna í Danmörku og EFTA-ríkjunum.
EIB hefur verið mikilvægur samstarfsaðili Orkuveitunnar um árabil og komið að fjármögnun mikilvægra innviðaverkefna sem styðja við uppbyggingu sjálfbærra orku- og veitukerfa. Heimsóknin var gott tækifæri til að efla samstarfið enn frekar og ræða þau fjölmörgu verkefni sem fram undan eru á sviði innviða, orkuskipta og loftslagslausna.
Fulltrúar Evrópska fjárfestingarbankans (EIB), þeir Gilles Badot, Timo Kiiha og Guillaume Piat, heimsóttu Orkuveituna. Á myndinni eru þeir ásamt Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra Orkuveitunnar, Snorra Þorkelssyni, framkvæmdastjóra fjármála Orkuveitunnar, og Brynju Ragnarsdóttur, forstöðukonu vatnsmiðla hjá Veitum.