Gerist ekkert í stafrænni þróun ef fólkið er ekki með
„Það gerist ekkert án þess að fólkið sé með,“ segja þær meðal annars í þættinum og ræða hvernig fyrirtæki geta skapað umhverfi þar sem starfsfólk sér tækifærin sem felast í nýrri tækni.
Þegar kemur að stafrænni þróun er auðvelt að horfa fyrst á tæknina sjálfa. Að sögn þeirra Herdísar, Hilmu og Ellenar snýst stór hluti verkefnisins þó meira um fólkið og ferlana. Þær nefna meðal annars að 70 prósent verkefnisins séu fólk og ferlar en 30 prósent tæknin.
Mikilvægt sé því að mæta starfsfólki þar sem það er, sýna með raunverulegum dæmum hvað gervigreind getur gert og hvernig hægt sé að nýta hana til að leysa vandamál, einfalda verkefni og spara tíma.
Þannig geti fólk nýtt tímann í verðmætari verkefni á meðan gervigreindin taki að sér hluta þeirrar handavinnu sem áður tók tíma.
Byrja smátt og prófa sig áfram
Í þættinum er einnig rætt um mikilvægi þess að forgangsraða verkefnum og byrja á þeim tækifærum sem auðvelt er að nýta strax. Með því að brjóta ferla niður í smærri skref verði auðveldara að prófa sig áfram, læra og sjá hvað virkar.
Það þurfi líka að vera í lagi að gera mistök. Stafræn þróun snúist að hluta til um tilraunir og mörg verkefni þurfi að mistakast áður en eitt hittir beint í mark.
Stjórnendur gegna jafnframt mikilvægu hlutverki í vegferðinni. Þeir þurfa að vera þátttakendur, setja skýra stefnu og sýna í verki að fyrirtækið sé tilbúið að prófa nýjar leiðir.
Nýr hugsunarháttur
Herdís og Ellen ræða líka hvernig innleiðing gervigreindar sé ekki aðeins tækniverkefni heldur einnig menningarbreyting. Markmiðið sé að fólk fari að spyrja sig: Hvernig getur gervigreind nýst mér í mínu starfi?
Til þess þurfi starfsfólk að vera tilbúið að tileinka sér nýja hæfni og fylgjast með þeirri þróun sem á sér stað í tækninni.
Gervigreindin eigi þannig ekki að koma í stað mannshandarinnar heldur gefa fólki tækifæri til að þróast í starfi og einbeita sér að verkefnum sem skipta mestu máli.
Hlustaðu á nýjasta þátt Orkunnar í náttúrunni hér.