Jafnrétti er ákvörðun sem þarf að framkvæma
Í tilefni Mannauðsdagsins, sem haldinn verður á morgun 2.október, var rætt við Ellen Ýr Aðalsteinsdóttur, framkvæmdastýru Mannauðs og tækni hjá Orkuveitunni, um mikilvægi mannauðsmála í síbreytilegu starfsumhverfi. Í viðtalinu ræðir Ellen meðal annars um hvernig öflug vinnustaðamenning, fjölbreytileiki og markviss þróun starfsfólks leggja grunn að árangri fyrirtækisins til framtíðar.
Mannauðsmál eru meðal lykiláherslna Orkuveitunnar sem endurspeglast meðal annars í nýju samstarfi fyrirtækisins við Jafnvægisvogina. Með samstarfinu undirstrikar Orkuveitan áframhaldandi áherslu á jafnrétti, fjölbreytileika og inngildandi vinnustaðamenningu þar sem öll fá tækifæri til að vaxa og njóta sín í starfi. Áherslurnar falla vel að mannauðsstefnu Orkuveitunnar þar sem lögð er rík áhersla á jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu.
Með samstarfinu miðlar Orkuveitan reynslu sinni og styður við áframhaldandi þróun, kynningu og starf Jafnvægisvogarinnar. Hér má lesa nánar um samstarf Orkuveitunnar og Jafnvægisvogarinnar.
Hér má kynna sér Jafnréttistímalínu Orkuveitunnar.
Við hvetjum áhugasöm til að kynna sér viðtalið við Ellen sem birtist í sérblaði Mannauðsdagsins í dag.