7. október 2026

Losum um hnútinn

Loading...

Jafnvægisvogin er verkefni á vegum FKA (Félag kvenna í atvinnulífinu) sem vinnur að því að stuðla að jafnari kynjaskiptingu í efstu lögum stjórnunar íslenskra fyrirtækja. Markmiðið er að auka fjölbreytileika, bæta ákvarðanatöku og styrkja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Orkuveitan hefur verið virkur þátttakandi í verkefninu um árabil og fyrirtæki Orkuveitunnar hafa öll hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar fyrir árangur í jafnréttismálum.

Í ár gerðist Orkuveitan jafnframt bakhjarl Jafnvægisvogarinnar. Með samstarfinu styður Orkuveitan við verkefni sem fellur vel að áherslum fyrirtækisins um jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu, um leið og við tökum virkan þátt í að móta umræðu og framfarir á þessu sviði.

Orkuveitan á einnig fulltrúa í Jafnvægisvogarráði þar sem Erna Sigurðardóttir, mannauðsleiðtogi hjá Orkuveitunni, tekur þátt í áframhaldandi þróun verkefnisins og vinnur að samstarfi við aðra bakhjarla og þátttakendur.

Undanfarið hefur Jafnvægisvogin staðið fyrir herferðinni Losum um hnútinn, sem hvetur fyrirtæki og leiðtoga til að skoða hvaða hindranir kunna að standa í vegi fyrir fjölbreytileika og jöfnum tækifærum. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, er eitt af andlitum herferðarinnar og hann mun jafnframt flytja erindi um mikilvægi inngildandi forystu, fjölbreytileika og ábyrgðar leiðtoga á viðurkenningarathöfn Jafnvægisvogarinnar sem fer fram 14.október.

Við hlökkum til að vinna enn nánar með Jafnvægisvoginni og leggja okkar af mörkum í að stuðla að frekari framförum í þessu mikilvæga verkefni.