20. ágúst 2026
Orkuveita Reykjavíkur: Ari Edwald nýr formaður stjórnar Orkuveitunnar
Loading...
Framhaldsaðalfundur Orkuveitu Reykjavíkur fór fram í dag, 20. ágúst 2026, þar sem kjöri stjórnar fyrirtækisins var lýst. Það eru sveitarstjórnir eigenda Orkuveitunnar – Reykjavíkurborgar, Akraneskaupstaðar og Borgarbyggðar – sem kjósa fulltrúana.
Formaður var kjörinn Ari Edwald, borgarfulltrúi. Hann er með háskólapróf í lögfræði og MBA og hefur gegnt starfi forstjóra hjá 365 miðlum og Mjólkursamsölunni.
Stjórn Orkuveitunnar er þannig skipuð:
- Ari Edwald, borgarfulltrúi er formaður
- Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi er varaformaður
- Ásta Dís Óladóttir, prófessor og forseti Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands
- Ragnar Baldvin Sæmundsson, bæjarfulltrúi á Akranesi
- Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, iðnaðarverkfræðingur og sjálfbærniráðgjafi
- Skúli Helgason, borgarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson situr fundi stjórnar sem áheyrnarfulltrúi Borgarbyggðar.
Varamenn eru: Magnea Gná Jóhannsdóttir, Brynjar Níelsson, Heiða Björg Hilmisdóttir, Auður Hermannsdóttir, María Sigríður Guðjónsdóttir og Liv Aase Skarstad. Áheyrnarfulltrúi til vara er Ragnhildur Eva Jónsdóttir.