Orkuveita Reykjavíkur: Framúrskarandi einkunn í sjálfbærnimati
Orkuveitan (Orkuveita Reykjavíkur) hefur fengið einkunnina A3 eða „Framúrskarandi“ í sjálfbærnimati Reitunar fyrir árið 2026, með 88 stig af 100. Það er óbreytt einkunn frá fyrra ári.
Niðurstöður matsins benda til stöðugrar og traustrar frammistöðu á sviði umhverfis-, félags- og stjórnarhátta, þar sem félagið gegnir mikilvægu hlutverki í grunninnviðum samfélagsins og hefur sett sér skýr markmið í sjálfbærnimálum til lengri tíma.
Í matinu er jafnframt bent á áframhaldandi framfarir í sjálfbærni, meðal annars í loftslagsmálum og nýsköpun, auk þess sem gögn matsins eru talin byggja á áreiðanlegum gögnum.
Fram kemur í matinu að Reitun meti 43 fyrirtæki með skráð hluta- eða skuldabréf hér á landi. Ekkert þeirra fær hærri einkunn en A3.
Yfirlitsblað fyrir matið er í viðhengi.