Orkuveitan tekur þátt í að samræma losunarbókhald jarðhita á heimsvísu
Orkuveitan hefur tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi um að samræma hvernig losun gróðurhúsalofttegunda frá jarðhita er metin, skráð og sett fram. Á heimsþingi jarðhita, World Geothermal Congress 2026, í Calgary í Kanada á dögunum var stigið mikilvægt skref í átt að gagnsærra og traustara losunarbókhaldi fyrir jarðhita um allan heim.
Samræmt bókhald skiptir máli
Jarðhiti gegnir mikilvægu hlutverki í orkuskiptum og sjálfbærri orkunýtingu. Til að hægt sé að bera saman niðurstöður milli landa og verkefna þarf þó að nota samræmdar aðferðir. Í dag geta mismunandi mæliaðferðir og ólík framsetning gert samanburð erfiðan.
Á heimsþinginu komu saman fulltrúar atvinnulífs, stjórnvalda, rannsóknastofnana og háskóla frá fjölmörgum löndum til að greina helstu áskoranir og móta sameiginlega framtíðarsýn um alþjóðlega samræmda aðferðafræði við mat, skráningu og skýrslugjöf vegna losunar frá jarðhita. Með sameiginlegri nálgun verður auðveldara að skilja raunveruleg loftslagsáhrif jarðhitanýtingar og miðla þeim með skýrum og ábyrgum hætti.
Náttúruleg losun frá jarðhitasvæðum
Losun frá jarðhitasvæðum er flókið viðfangsefni. Margt bendir til þess að losun koltvísýrings sem hingað til hefur verið skráður sem manngerð losun frá jarðhitanýtingu geti í raun talist náttúruleg losun frá jarðhitasvæðum. Rannsóknir hafa meðal annars sýnt að náttúruleg gaslosun um yfirborð getur dregist saman þegar vinnsla á jarðhita hefst, auk þess sem jarðhræringar geta haft áhrif á umfang losunar. Þetta vekur mikilvægar spurningar um hvernig meta eigi raunveruleg áhrif jarðhitanýtingar á losun gróðurhúsalofttegunda.
Á heimsþinginu var einnig kynnt sameiginleg vísindagrein sem unnin var á vettvangi samstarfsins um samræmingu losunarbókhalds fyrir jarðhita á heimsvísu og áhersla lögð á að jarðhitageirinn þurfi að tala skýrt og samræmt um losun og loftslagsáhrif.
Mikilvægt alþjóðlegt samstarf
Starfið fer fram á alþjóðlegum vettvangi IEA Geothermal og nýtur stuðnings Alþjóðasamtaka jarðhita (IGA). Orkuveitan átti fulltrúa í hópnum og leggur þannig sitt af mörkum til að styrkja faglegan grunn, gagnsæi og alþjóðlegt samstarf um ábyrga nýtingu jarðhita.