29. september 2026

Rafmagnaður Rafveituhringur í Samgönguviku

Rafmagnaður Rafveituhringur í Samgönguviku

Fyrr í mánuðinum fór fram evrópska Samgönguvikan, en markmiðið með vikunni er að vekja athygli á fjölbreyttum ferðamátum og þeim valkostum sem fólk hefur í sínum daglegu ferðum.

Orkuveitan, Elliðaárstöð og Veitur buðu í tilefninu upp á hinn sívinsæla Rafveituhring sem starfsfólk úr röðum Veitna leiddu. Í ár var Rafveituhringurinn hjólaður í samstarfi við Lauf Cycles og starfsfólk Veitna fékk tækifæri til að hjóla rafveituhringinn á eElju, rafmagnsfjallahjólunum þeirra.

Þátttakendur í Rafveituhringnum fengu fræðslu um dreifikerfið, kynntust leið rafmagnsins frá virkjun í hús og skoðuð voru tengivirki sem tengjast flutningskerfi Landsnets á Geithálsi og Korpu ásamt því að litið var inn í dreifistöð.

Við þökkum öllum þeim sem hjóluðu með okkur kærlega fyrir og þökkum Lauf Cycles fyrir frábært samstarf.

Rafveituhringur2026_-16
Rafveituhringur2026_-3 (1)
Rafveituhringur2026_-4
Rafveituhringur2026_-7