18. júní 2026

Sérfræðingar Orkuveitunnar á WGC 2026

Loading...

Orkuveitan og dótturfélög hennar, Orka náttúrunnar (ON) og Veitur, tóku þátt í World Geothermal Congress 2026 sem fór fram í Calgary í Kanada dagana 8.–11. júní. Ráðstefnan er stærsti alþjóðlegi vettvangur jarðhitageirans og kemur saman sérfræðingum, rannsakendum, fyrirtækjum og stefnumótendum alls staðar að úr heiminum til að ræða nýsköpun, þróun og framtíð jarðhita.

Fulltrúar samstæðu Orkuveitunnar tóku virkan þátt í dagskrá ráðstefnunnar með fyrirlestrum, pallborðsumræðum og kynningu á íslenskri þekkingu og reynslu af nýtingu jarðhita. Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni, og Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, tóku þátt í pallborðsumræðum á sérstöku málþingi sem Green by Iceland stóð fyrir í tengslum við ráðstefnuna, og Harpa Pétursdóttir, forstöðumaður nýrra orkukosta hjá ON, gegndi þar hlutverki fundarstjóra.

Fjöldi sérfræðinga frá Orkuveitunni og dótturfélögum hennar flutti jafnframt erindi þar sem fjallað var meðal annars um auðlindastýringu, áhrif eldvirkni á hitaveitukerfi, djúpjarðhita og nýsköpun í nýtingu jarðvarma með verkefnum eins og IDDP (Iceland Deep Drilling Project). Þátttaka fyrirtækjanna endurspelgar þá víðtæku þekkingu og reynslu sem byggst hefur upp innan samstæðunnar á sviði sjálfbærrar orkuvinnslu og veituþjónustu.

Orkuveitan, ON og Veitur voru jafnframt hluti af sameiginlegum íslenskum sýningarbás á vegum Green by Iceland þar sem gestum ráðstefnunnar gafst kostur á að kynnast íslenskum lausnum, verkefnum og tækninýjungum á sviði jarðhita. Þar sköpuðust mörg góð tækifæri til að efla alþjóðlegt samstarf, miðla þekkingu og kynna þá reynslu sem Ísland hefur aflað sér á sviði endurnýjanlegrar orku.

Þátttaka Orkuveitunnar á WGC 2026 styður við markmið fyrirtækjanna um að vera leiðandi afl í sjálfbærri nýtingu auðlinda, nýsköpun og orkuskiptum. Jafnframt er ráðstefnan mikilvægt tækifæri til að læra af alþjóðlegum samstarfsaðilum og fylgjast með nýjustu þróun í jarðhitageiranum. Við þökkum kærlega fyrir virkilega áhugaverða ráðstefnu, öll þau fræðandi erindi sem við fengum að hlýða á og öll góðu samtölin sem við áttum við gesti ráðstefnunnar.

Loading...
Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona hitaveitu Veitna, Hera Grímsdóttir, framkvæmdastýra Rannsókna og nýsköpunar, Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna
Loading...
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar
Loading...
Sigurður H. Markússon, leiðtogi djúpnýtingar
Loading...
Þráinn Friðriksson, auðlindaleiðtogi hitaveitu
Loading...
Dario Ingi Di Rienzo, sérfræðingur í jarðvísindum
Loading...
Pálmar Sigurðsson, leiðtogi verkefnaþróunar Orkuveitunnar
Loading...
Ásdís Benediktsdóttir, auðlindaleiðtogi ON