20. nóvember 2017

Prýðileg rekstrarniðurstaða OR eftir níu mánuði

Loading...

Rekstrarkostnaður Orkuveitu Reykjavíkur fyrstu níu mánuði ársins 2017 var lægri en sömu mánuði í fyrra. Ytri rekstrarskilyrði hafa um margt verið hagstæð það sem af er ári og nam hagnaður fyrstu níu mánaðanna 10,5 milljörðum króna. Árshlutareikningur samstæðu OR fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2017 var samþykktur af stjórn í dag.

OR árshlutareikningur samstæðu F3 2017

Rekstrarkostnaður fer lækkandi

Innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur eru, auk móðurfélagsins; Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Samanlagður rekstrarkostnaður fyrirtækjanna lækkaði frá fyrra ári. Í fjárhagsspá fyrir næsta ár, sem birt var 20. október síðastliðinn, er gert ráð fyrir að rekstrarkostnaður haldi áfram að lækka. Þetta skilar sér til viðskiptavina því á þessu ári hefur gjaldskrá fyrir kalt vatn lækkað og gjaldskrá fyrir dreifingu rafmagns lækkað tvisvar.

Álverð hefur hækkað

Verulegur hluti raforkusölu ON, dótturfyrirtækis OR, er tengdur álverði, sem hefur hækkað nokkuð frá áramótum. Þetta hefur skilað auknum tekjum á árinu. Samningar um raforkusölu til álbræðslu eru langtímasamningar og er áætlaður ábati á öllum samningstímanum færður til tekna í árshlutareikningnum. Þess vegna endurspeglar hin góða rekstrarniðurstaða tímabilsins ekki bara tekjuaukningu frá áramótum heldur einnig væntan tekjuauka, sem framtíðin mun leiða í ljós hvort skilar sér.

Lykiltölur fjármála á vef OR

Samhliða árshlutauppgjörum hefur Orkuveita Reykjavíkur gefið út lykiltölur fjármála. Á vefnum er einnig að finna árshluta- og ársreikninga OR og dótturfyrirtækja fyrir síðustu ár.

Fjárhæðir í milljónum krónaF3 2013F3 2014F3 2015F3 2016F3 2017
Rekstrartekjur28.80626.96028.76829.92131.310
Rekstrarkostnaður(9.794)(9.195)(10.535)(11.785)(11.744)
þ.a. orkukaup og flutningur(3.902)(3.644)(4.645)(4.555)(4.238)
EBITDA19.01217.76618.23418.13619.566
Afskriftir(6.251)(6.510)(7.172)(7.584)(7.051)
Rekstrarhagnaður (EBIT)12.76211.25611.06110.55112.515
Tekjuskattur tímabilsins(620)(2.257)0(3.421)(3.593)
Afkoma tímabilsins5.9727.8793.0939.36810.512
Sjóðstreymi
Innborgaðar vaxtatekjur176442377146278
Greidd vaxtagjöld3.4483.4203.1812.6002.990
Handbært fé frá rekstri16.93417.88518.12617.30518.625
Veltufé frá rekstri14.97312.67714.73414.85315.080
Fjárfesting rekstrarfjármuna(2.196)(3.565)(7.323)(8.422)(9.567)
Afborganir vaxtaberandi skulda(20.561)(13.913)(11.977)(12.681)(13.835)