4. jún 2024
OrkuveitanOrkuveita Reykjavíkur (Orkuveitan) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 11. júní 2024. Boðnir verða til sölu grænu skuldabréfaflokkarnir OR020934 GB og OR180255 GB.
OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 27.042 m.kr. í flokknum.
OR180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 32.346 m.kr. í flokknum.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.
Skila skal inn tilboðum á netfangið utbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 11. júní 2024. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 18. júní 2024.