Kristrún Lilja leiðir stafræna og stefnumiðaða umbreytingu hjá Orkuveitunni

9. sep 2024

Orkuveitan
Kristrún Lilja Júlíusdóttir forstöðukona SSU.
© Einar Örn Jónsson

Kristrún Lilja Júlíusdóttir hefur verið ráðin forstöðukona nýrrar einingar, Stafræn Stefnumiðuð Umbreyting hjá Orkuveitunni. Kristrún kemur frá Íslandsbanka, þar sem hún hefur gegnt lykilhlutverki sem forstöðumaður Daglegra Bankaviðskipta.

Leiðir tæknilegar umbreytingar
Stafræn Stefnumiðuð Umbreyting er ný eining innan Orkuveitunnar sem miðar að því að vera drifkraftur tæknilegra umbreytinga og lykileining í innleiðingu heildarstefnu fyrirtækisins. Einingin mun samþætta stefnu, ferla og tækni með það að markmiði að hámarka árangur, með sérstakri áherslu á gervigreind og gagnadrifna ákvarðanatöku. Einingin mun einnig leggja grunn að aukinni sjálfsþjónustu og samvinnu, ásamt því að styðja við sveigjanlega og skilvirka vöruþróun innan fyrirtækja Orkuveitunnar. Er hún hluti af sviðinu Mannauður og tækni.

Reynslumikill leiðtogi með fjölbreyttan bakgrunn
Kristrún Lilja er tölvunarfræðingur að mennt, með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, og hefur einnig stundað nám í Heilbrigðis- og Rafmagnsverkfræði. Hún hefur víðtæka reynslu úr bankageiranum, en áður en hún hóf störf hjá Íslandsbanka árið 2009, starfaði hún sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá Advania. Á ferli sínum hjá Íslandsbanka gegndi hún ýmsum stjórnunarstöðum, þar á meðal sem deildarstjóri Markaðslausna, deildarstjóri Grunnvirkni og forstöðumaður Markaðs- og verðbréfalausna.

Orkuveitan horfir til framtíðar
Ellen Ýr Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastýra Mannauðs og tækni hjá Orkuveitunni, segir um ráðningu Kristrúnar: „Það er frábært að fá Kristrúnu til okkar í þessa nýju og spennandi einingu sem við höfum miklar væntingar til. Hún er með frábæra reynslu úr bankageiranum og við erum bæði stolt og ánægð með að fá hana til þess að leiða okkur áfram í þeim spennandi verkefnum sem framundan eru.“

Hlakkar til nýrra áskorana
Kristrún Lilja lýsir einnig ánægju sinni með nýja starfið: „Það er margt líkt með Orkuveitunni og banka þegar kemur að stafrænni vegferð og vöruþróun. Framúrskarandi gagnamarkaðir og margar flottar tæknilegar grunnstoðir til staðar til að halda áfram að byggja ofan á það snjallar og skilvirkar lausnir. Ég er virkilega spennt að leiða þetta áfram með mögnuðu fólki í teyminu.“

Orkuveitan fagnar því að hafa fengið Kristrúnu Lilju til liðs við sig og hlakkar til að sjá hvert nýja einingin mun leiða tæknilega þróun fyrirtækisins í framtíðinni.