Orkuveitan blæs til sóknar í orkuöflun með einu stærsta borútboði síðari ára

26. ágú 2024

Orkuveitan

Orkuveitan í samstarfi við KPMG hefur sett í loftið útboð á Evrópska efnahagssvæðinu á borun á allt að 35 rannsóknar- og vatnstökuholum á næstu fjórum árum. Bora á eftir heitu vatni fyrir ört stækkandi byggðir en einnig verða boraðar holur til rannsókna á nýjum svæðum til frekari orku- og vatnsöflunar.

Sævar Freyr Þráinsson forstjóri Orkuveitunnar segir þetta risa stóra skref í orkuöflun endurspegla nýja framtíðarsýn fyrirtækisins. Þar sé lögð áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, samstarf og framtíðarhugsun með hag samfélagsins og viðskiptavina að leiðarljósi.

Sævar-Freyr---Breyttur-bakgrunnur.jpg

Ætlum að auka framboð á orku verulega

„Við hjá Orkuveitunni finnum fyrir mikilli ásókn í okkar orku og erum að vinna markvisst að því að auka framleiðslu á endurnýjanlegri orku í átt að kolefnishlutlausri framtíð. Með þessu útboði erum við einnig að styðja við vaxandi samfélög, heimili og atvinnulíf. Stærðargráðan á útboðinu er staðfesting á því að við ætlum okkur að auka hér framboð á orku verulega á næstu árum,“ segir Sævar Freyr.

Þá segir Sævar orkuskiptin vera eitt allra stærsta og mikilvægasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir. „Þetta snýst um að breyta framleiðsluaðferðum, samgöngum, almennum lifnaðarháttum og finna nýjar leiðir til að hreyfa samfélög áfram til meiri árangurs, í sátt við náttúruna.“

Hann segir Orkuveituna taka hlutverk sitt sem lykilaðila á íslenskum orkumarkaði alvarlega og minnir á að það þurfi bæði framsýni og nýsköpun til þess að ná árangri í umhverfismálum.

„Með vandaðri langtíma áætlun líkt og við erum að setja hér fram teljum við að hægt sé að ná enn meiri hagkvæmni við boranir. Þá teljum við að stærðargráða útboðsins leggi grundvöll að fjárfestingu verktaka í rafmagnsbor en fáir slíkir borar eru tiltækir nú. Með þessu erum við vonandi að örva tækniþróun í þessum geira með tilheyrandi ábata fyrir samfélagið.“

Sólrún.jpg

Veitum lífsgæði til framtíðar

Sólrún Kristjánsdóttir framkvæmdastýra Veitna segir að um sé að ræða stærsta útboð fyrirtækisins á borframkvæmdum á síðari árum.

„Þetta útboð er afar mikilvægt skref í þeirri vinnu okkar að tryggja forðamál Hitaveitunnar til næstu ára. Við sjáum það með ört stækkandi samfélagi og aukinni notkun hvað fyrirsjáanleikinn skiptir miklu máli. Útboðið samræmist vel stefnu Veitna um að hafa frumkvæði að sjálfbærum lausnum með árangur samfélagsins að leiðarljósi. Með nýsköpun og samstarfi veitum við lífsgæði til framtíðar.“

Árni Hrannar.jpg

Þurfum að auka framleiðslu rafmagns

Árni Hrannar Haraldsson framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar segir útboðið mikilvægt skref í því að auka hér framleiðslu rafmagns.

„Orka náttúrunnar hefur mikilvægu hlutverki að gegna sem framleiðandi og seljandi rafmagns til allra landsmanna og framleiðandi heits vatns sem selt er til Veitna. Þar sem eftirspurn eftir rafmagni er alltaf að aukast, bæði vegna orkuskiptanna og aukins fólksfjölda, auk þess að við viljum ná þeim loftlagsmarkmiðum sem þjóðin hefur sett sér, þurfum við að framleiða meira rafmagn hér á landi. Útboðið er því mikilvægt til að auka orkuöflun og viðhalda framleiðslu og sölu á rafmagni á ábyrgan og umhverfisvænan hátt til allra landsmanna.“

Verkefnastjóri er Símon Þorleifsson hjá Orkuveitunni og útboðið sem unnið er með KPMG fer fram á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og stendur opið til 20. september 2024.

Frekari upplýsingar eru aðgengilegar á útboðsvef Orkuveitunnar: ORVK-2024-01 Geothermal Drilling Works.

Þá er hægt að kynna sér útboðið og áform Orkuveitunnar hér.