Orkuveitan er móðurfélag Veitna, Orku náttúrunnar, Ljósleiðarans og Carbfix. Við styðjum vaxandi samfélag, heimili og atvinnulíf með nýsköpun í orku, veitustarfsemi og kolefnisbindingu. Við erum aflvaki sjálfbærrar framtíðar.
Í framtíðarsýn og stefnu fyrirtækisins er lögð áhersla á sjálfbærni, nýsköpun, samstarf og framtíðarhugsun með hag viðskiptavina og samfélagsins að leiðarljósi.
Með því að nýta orku náttúrunnar, skapandi orku mannlífsins og frumkvöðlaorku starfseminnar skipar Orkuveitan sér í fremstu röð við að knýja áfram samfélög með sjálfbærum hætti. Við njótum öll ávinningsins.
Frumkvæði endurspeglar skuldbindingu okkar til að knýja fram jákvæðar breytingar.
Framsýni snýr einkum að hlutverki Orkuveitunnar þar sem veiturekstur er í eðli sínu viðfangsefni til afar langs tíma og þarfir íbúanna fyrir þjónustu veitufyrirtækja úreldast ekki.
Hagsýni er boðorð hagkvæms reksturs frá degi til dags þannig að viðskiptavinir fái skilgreinda þjónustu á sanngjörnu verði.
Heiðarleiki snýr að því hvernig starfsfólk kemur fram við viðskiptavini og hvert við annað, hvernig það starfar og tryggir gegnsæi í rekstrinum.