Gildi Orkuveitunnar eru fjögur og þau eiga að einkenna alla vinnu innan fyrirtækisins.
- Frumkvæði - endurspeglar nýja stefnu Orkuveitunnar og snýr að því frumkvæði sem við þurfum að sýna þegar kemur að t.d. orkuöflun og könnun á nýjum orkukostum.
- Framsýni - snýr einkum að hlutverki Orkuveitunnar, þar sem veiturekstur er í eðli sínu viðfangsefni til afar langs tíma og þarfir íbúanna fyrir þjónustu veitufyrirtækja úreldast ekki.
- Hagsýni - er boðorð hagkvæms reksturs frá degi til dags þannig að viðskiptavinir fái skilgreinda þjónustu á sanngjörnu verði.
- Heiðarleiki - snýr að því hvernig starfsfólk kemur fram við viðskiptavini og hvert við annað, hvernig það starfar og tryggir gegnsæi í rekstrinum.