[Stefna lögð fyrir stjórn 27.02.2023, með breytingum]
Það er stefna Orkuveitu Reykjavíkur að:
- Beita útboðum, s.s. almennum eða lokuðum eða öðrum lögbundnum innkaupaferlum við kaup á vörum, þjónustu og verkframkvæmdum. Við innkaup verði tekið tillit til sjálfbærnisjónarmiða og að hagstæðasta tilboði sé tekið.
- Innkaupareglur og innkaupaaðferðir séu skýrar og gagnsæjar.
- Gæta jafnræðis, gagnsæis og hagkvæmni við öll innkaup.
- Við innkaup og rekstur samninga skuli taka tillit til sjálfbærnisjónarmiða, s.s. gæða-, heilbrigðis-, mannréttinda-, umhverfis-, upplýsingaöryggis- og öryggissjónarmiða.
Innkaupastefnan byggir á gildum og heildarstefnu OR og er sett fram til samræmis við eigendastefnu fyrirtækisins.