Jafnréttisstefna er skuldbinding Orkuveitunnar um stöðugar umbætur í jafnréttismálum.
[Stefna lögð fram á stjórnarfundi 24.04.2023. Með breytingum ]
Jafnréttisstefna er skuldbinding Orkuveitu Reykjavíkur um stöðugar umbætur í jafnréttismálum. OR leggur mannréttindaákvæði stjórnarskrárinnar til grundvallar jafnréttisstefnu sinni. Jafnréttisstefna OR miðar að því að meta einstaklinga að eigin verðleikum og að þeir fái notið jafns réttar.
Fyrirtækið vinnur markvisst að því:
Að starfskjör fyrir jafnverðmæt störf fyrir séu óháð kyni.
Að jafna hlutfall kynja innan OR samstæðunnar og einstakra fyrirtækja, hópa, sviða, deilda.
Að auka fjölbreytni innan fyrirtækja og hópa til að mynda varðandi kynferði, aldur, kynhneigð, trúarbrögð, skoðanir, þjóðerni, kynþætti, litarhætti, efnahag, ætterni og stöðu að öðru leyti.
Að gera starfsfólki kleift að samræma sem best einkalíf og starfsábyrgð.
Að efla jafnréttismenningu starfsfólks OR samstæðunnar.
Að efla fræðslu og vitund starfsfólks um málefni og áskoranir minnihlutahópa.
Að vinna gegn einelti, kynbundnu ofbeldi, kynbundnu áreitni og kynferðislegri áreitni innan fyrirtækisins.
Að tryggja fjölbreytni innan hópa á öllum stigum ábyrgðar- og ákvarðanatöku innan fyrirtækisins og tekið sé mið af jafnréttissjónarmiðum við stefnumótun og stærri ákvarðanir.
Að tryggja gott aðgengi og vinnuaðstöðu á grundvelli líkamlegs og andlegs atgervis.
OR uppfyllir kröfur í formi laga, reglna og reglugerða um jafnréttismál.
Jafnréttisstefnan byggir á gildum og heildarstefnu OR og er sett fram til samræmis við eigendastefnu og starfskjarastefnu samstæðu OR.