[Stefna lögð fyrir stjórn OR 22.05.2023]
Öryggis- og heilsumál eru alltaf í forgrunni hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Ekkert verk er svo mikilvægt að hætta megi öryggi fólks við framkvæmd þess.
OR er til fyrirmyndar í öryggis- og heilsumálum og einsetur sér að vernda og bæta líf þeirra sem starfa fyrir félagið með því að skapa slysalausan vinnustað þar sem ekkert starfsfólk, verktakar eða aðrir bíði heilsutjón vegna starfseminnar.
Öll sem starfa fyrir OR eru ábyrg fyrir eigin öryggi, tala fyrir auknu öryggi samstarfsfólks og leitast við að koma auga á, meta og stjórna áhættum í vinnuumhverfinu.
Fyrirtækið vinnur markvisst að því að:
Stefna í öryggis- og heilsumálum byggir á gildum og heildarstefnu OR og er sett fram til samræmis við eigendastefnu fyrirtækisins.
OR uppfyllir kröfur í formi laga, reglna og reglugerða um öryggis- og heilbrigðismál.