Orkuveitan hóf útgáfu grænna skuldabréfa árið 2019. Ramma þeirrar útgáfu er að finna neðar á síðunni.
Árið 2021 gaf Orkuveitan út ramma grænnar fjármögnunar. Með honum er mörkuð sú stefna að fara alfarið í græna fjármögnun samstæðunnar og ramma hennar er einnig að finna hér á síðunni.
Grænn fjármögnunarrammi Orkuveitunnar felur í sér að stefnt er að því að öll fjármögnun samstæðunnar sé græn, hvort heldur sem er skuldabréfaútgáfa eða lántaka af öðru tagi. Fjármögnunarramminn hefur fengið óháð álit frá CICERO. Hann fékk einkunnina Dökkgrænn og Framúrskarandi fyrir umgjörð hans.
Reykjavík Energy (OR) - Green Financing Framework
Reykjavik Energy (OR) - Green Financing Framework - Second Opinion - CICERO
Orkuveitan hefur unnið skipulega að umhverfismálum um langa hríð. Græni ramminn og skuldabréfaútgáfan sem undir hann fellur er staðfesting á þeim markmiðum sem Orkuveitan hefur sett sér sem snúa að því að fjármagna eða endurfjármagna verkefni sem stuðla að ábyrgri og sjálfbærri nýtingu auðlinda.
Tilgangur útgáfunnar er að fjármagna þau fjölmörgu grænu verkefni sem eru á döfinni hjá Orkuveitunni og dótturfyrirtækjunum – Veitum og Orku náttúrunnar. Má þar nefna; orkuvinnslu úr endurnýjanlegum orkugjöfum, svo sem raforkuvinnslu og stækkun hitaveitna, vatnsvernd og eflingu fráveitna, snjallvæðingu veitukerfa og metnaðarfull kolefnisbindingarverkefni.
Græni ramminn fylgir svokölluðum „green bond principles“, viðmiðum útgefnum af ICMA, Alþjóðasamtökum aðila á verðbréfamarkaði. Græni ramminn byggir á fjórum stoðum:
CICERO (Center for International Climate Research) hefur veitt óháð álit á rammanum og gefur honum hæstu einkunnir; „dark green“ fyrir jákvæð umhverfisáhrif verkefnanna og „excellent“ fyrir umgjörð skuldabréfanna hjá fyrirtækinu.
Reykjavik Energy (OR) - Green Bond Framework
Reykjavik Energy (OR) - Second Opinion - CICERO
Reykjavik Energy – 2019 Green Finance Impact Report – Auditor‘s Assurance
Reykjavik Energy – 2020 Green Finance Impact Report – Auditor‘s Assurance
Reykjavik Energy – 2021 Green Finance Impact Report – Auditor‘s Assurance
Reykjavík Energy 2021 Green Finance Allocation and Impact Report - CORRECTED