Hlöðum betur

Rafbílarannsókn Orkuveitunnar, ON og Veitna

kona-fyllir-a-bil-2-1100x493.jpg
Um verkefnið Hlöðum betur

Í rannsóknarverkefninu Hlöðum betur voru skoðaðar ýmsar gerðir álagsstýringa til þess að hafa áhrif á hleðsluvenjur rafbílaeigenda. Markmiðið með álagsstýringu er að dreifa auknu álagi á rafdreifikerfið sem myndast vegna rafbílahleðslu og þannig auka nýtni rafdreifikerfisins. Verkefnið sýndi að hægt er að ná töluverðum árangri með álagsstýringum og geta slíkar lausnir því hjálpað gríðarlega í orkuskiptunum. Rannsóknartímabilið byrjaði í nóvember 2022 og lauk í febrúar 2024.

Markmið verkefnisins var að svara eftirfarandi spurningu
  • Hvernig getur álagsstýring dreift álagi vegna rafbílahleðslu til að auka nýtni rafdreifikerfisins og koma í veg fyrir álagstoppa?

Niðurstaða verkefnisins

Í verkefninu voru skoðaðar þrjár gerðir álagsstýringa, sem allar sýndu fram á möguleika í að lækka álagstoppa í rafdreifikerfinu. Tímaháð verðskrá, þar sem lægra verð er utan álagstíma, lækkaði toppa töluvert. Önnur gerð álagsstýringar, þar sem orkunotkun hvers klukkutíma fór á þrepaskipta verðskrá, sýndi einnig fram á toppalækkun. Síðasta álagsstýringin, bein hleðslustýring, var gerð með því að fjarstýra hleðslustöðvum þátttakendanna í rannsókninni. Tvær mismunandi stýringaraðferðir voru skoðaðar, þar sem einfaldari aðferðin lækkaði toppa á sumum tímum en hækkaði þá í öðrum tilvikum. Seinni aðferðin, sem notaðist við hleðslutölfræði þátttakendanna, dreifði álaginu betur og lækkaði álagstoppa.

Þátttakendum verkefnisins fannst tímaháða verðskráin vera ákjósanlegust, þar á eftir kom aflþátturinn og loks beina stýringin. Meirihluta þátttakenda fannst fyrirhöfnin við þátttöku í álagsstýringum þess virði.

  • Hér má lesa kynningu um niðurstöðu verkefnisins sem kynnt var þann 27.september 2024.
  • Hér má finna samantekt um verkefnið, þar sem helstu niðurstöður eru dregnar saman.
  • Hér er hægt að hlaða niður notkunargögnum úr verkefninu, ásamt yfirlit yfir hópaskiptingu og álagsstýringar í tímalínu.
  • Hér er ítarleg skýrsla um verkefnið.
  • Hér má lesa meira um verkefnið.