Niðurstaða útboðs grænna skuldabréfa 22.ágúst

23. ágú 2024

Orkuveitan

Útboði á grænum skuldabréfum Orkuveitu Reykjavíkur lauk í dag, 22. ágúst 2024. Gefin voru út skuldabréf í skuldabréfaflokkunum OR020934 GB og OR180255 GB ásamt nýjum grænum skuldabréfaflokki OR280845 GB.

OR020934 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 2. september 2034. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 27.607 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 800 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 4,41% - 4,54%. Tilboðum að fjárhæð 500 m.kr. að nafnvirði var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,48%.

OR280845 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 28. ágúst 2045. Flokkurinn ber 3,70% fasta vexti og er uppgreiðanlegur að 13 árum liðnum. Ekki hafa verið gefin út bréf í flokknum áður.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 2.250 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,72 - 4,08%. Tilboðum að fjárhæð 2.050 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 4,05%.

OR0180255 GB ber fasta verðtryggða vexti og greiðir jafnar greiðslur á sex mánaða fresti með lokagjalddaga 18. febrúar 2055. Áður hafa verið gefin út bréf að nafnverði 34.246 m.kr. í flokknum.

Heildartilboð í flokkinn voru samtals 1.290 m.kr. að nafnvirði, þar sem ávöxtunarkrafa var á bilinu 3,52 - 3,60%. Tilboðum að fjárhæð 1.000 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,54%.

Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á markaði Nasdaq á Íslandi með sjálfbær skuldabréf.